flugfréttir
Tim Clark ætlar að yfirgefa Emirates í júní 2020
- Hefur starfað fyrir Emirates allt frá stofnun þess árið 1985
Tim Clark, forstjóri Emirates
Tim Clark, forstjóri Emirates, hefur lýst því yfir að hann muni að öllum líkindum stíga til hliðar og hætta sem forstjóri félagsins um mitt næsta ár.
Tim Clark hafa starfað hjá Emirates í meira en þrjá áratugi allt frá stofnun félagsins árið 1985
en 18 árum síðar, eða árið 2003, tók hann við stjórnartaumunum og hefur náð að gera félagið að einu stærsta flugfélag heims sem
flýgur til fleiri áfangastaða í millilandaflugi en nokkuð annað flugfélag.
Clark segist ætla hætta sem forstjóri í lok júnímánaðar á næsta ári en hann ætlar þó að vera félaginu innan handar
sem ráðgjafi þótt hann verði ekki lengur í forstjórastólnum.
Tilkynnt var um þetta í skilaboðum til starfsmanna Emirates og hefur talsmaður félagsins staðfest tíðindin en ekki
er búið að velja hver verður forstjóri í hans stað.
Tim Clark, sem er 70 ára og fæddur í Bretlandi, hafði áður starfað fyrir Gulf Air og Caledonian Airways áður en hann gekk til liðs við Emirates. Árið 2014 var hann aðlaður af Elísabetu Englandsdrottningu og fékk nafngiftina „Sir Tim Clark“ fyrir framlag sitt til flugiðnaðarins.
„Í gegnum stríð, erfitt efnahagsástand í heiminum, náttúruhamfarir og ýmsa erfiðleika, þá hefur Tim Clark náð að stjórna
Emirates og auka umsvif þess með hverju árinu allt fram til dagsins í dag og gert félagið að stærsta flugfélagi heims“, segir Sheikh Ahmed bin Saeed Al Maktoum í yfirlýsingu sinni.
John Strickland, sjálfstæður ráðgjafi í flugmálum, segir að Tim sé risi innan flugbransans og hafi sýn hans er varðar
rekstur Emirates mótað félagið eins og það stendur í dag.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.