flugfréttir
Surinam Airways fær sína fyrstu Boeing 777 þotu í flotann
- Skipta út Airbus A340 þotunni
Boeing 777 þota Surinam Airways á flugvellinum í Paramaribo þann 20. desember síðastliðinn
Ríkisflugfélagið Surinam Airways hefur tekið við sinni fyrstu Boeing 777 þotu en félagið er með þeim elstu flugfélögum í Suður-Ameríku, stofnað árið 1953, og hefur haft margar tegundir í flota sínum á þeim 64 árum sem félagið hefur verið starfrækt.
Boeing 777 þotan sem Surinam Airways hefur fengið afhenta er 17 ára gömul og kemur út flota Singapore Airlines
en hún er af gerðinni Boeing 777-200.
Þotan er leigð til Surinam Airways frá Boeing Aircraft Holding og var þotunni flogið frá Frankfurt til Johan Adolf Pengel
flugvallarins í Paramaribo.
Surinam Airways mun nota Boeing 777 þotuna í langflugi til Amsterdam meðal annars en félagið hefur notað Airbus A340
breiðþotu í því flugi frá árinu 2015 en þar áður hafði félagið notað júmbó-þotu í fluginu til Hollands.
Airbus A340 þotan sem félagið hefur haft er nú kyrrsett á Schiphol-flugvellinum í Amsterdam vegna viðhaldsmála
auk þess sem lendingarbúnaður vélarinnar er bilaður.
Boeing 777 þotan verður þó ekki lengi í flota Surinam Airways þar sem félagið mun taka við nýrri Dreamliner-þotu
árið 2021.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.