flugfréttir

Isavia semur við ELKO um aðstöðu á Keflavíkurflugvelli

30. desember 2019

|

Frétt skrifuð kl. 16:35

Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia (til vinstri) og Gestur Hjaltason, framkvæmdastjóri Elko, eftir undirritun samningsins

Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, og Gestur Hjaltason, framkvæmdastjóri Elko, hafa undirritað samning við Elko um aðstöðu undir tvær raftækjaverslanir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli. Samningurinn er til þriggja ára með möguleika á tveggja ára framlengingu, eitt ár í senn.

Elko átti hagkvæmasta tilboðið í útboði sem hófst í júní síðastliðnum. Niðurstaðan lá fyrir í byrjun nóvember. Aðstaðan var boðin út þar sem fyrri samningur við Elko er að renna út. Óskað var eftir reynslumiklum aðila sem hefði yfir að ráða úrvali vörumerkja. Gerð var sú krafa að viðkomandi hefði rekið að lágmarki tvær raftækjaverslanir samhliða síðastliðin þrjú ár og hefði yfir að ráða úrvali vörumerkja og vöruframboði.

Við mat á tilboðum var m.a. horft til vöruúrvals, verðstefnu, þjónustu, mannauðsmála, hönnunar og upplifunar í verslun auk fjárhagslegra þátta.

Sjö aðilar sóttu útboðsgögn. Tvö fyrirtæki sendu gögn til þátttöku, báðir aðilar uppfylltu hæfiskröfur og var þeim boðið til viðræðna. Í valferlinu var notast við viðræður og í kjölfar þeirra skiluðu þátttakendur inn lokatilboðum. Valnefnd mat tilboðin til stiga en hún var skipuð tveimur fulltrúum frá Isavia og tveimur óháðum ráðgjöfum frá Deloitte og Capacent.

Samningurinn við Elko tekur gildi í janúar 2020 og verða endurbættar verslanir Elko í brottfarar- og komusal flugstöðvarinnar opnaðar á nýju ári. Þar verður aukin áhersla lögð á stafræna viðskiptahætti og skemmtilega upplifun.

Frá vinstri: Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir, deildarstjóri hjá viðskiptadeild Keflavíkurflugvallar, Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, Gestur Hjaltason, framkvæmdastjóri Elko, og Óttar Örn Sigurbergsson, innkaupastjóri hjá Elko.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga