flugfréttir
Fyrrum WOW air breiðþota skemmdist í lendingu í Nígeríu
- Hafði aðeins verið í 3 daga í notkun hjá Turkish Airlines
TC-LOL hafði aðeins verið í notkun í 3 daga hjá Turkish Airlines er hún skemmdist í lendingu í Nígeríu
Breiðþota af gerðinni Airbus A330, sem áður var í flota WOW air, varð fyrir skemmdum aðeins þremur dögum eftir að hún var tekin í notkun hjá flugfélaginu Turkish Airlines.
Félagið hóf áætlunarflug með þotunni, sem ber skráninguna TC-LOL, þann 27. desember og var vélin fyrstu dagana aðeins í innanlandsflugi í Tyrklandi en aðfaranótt gamlársdags skemmdist hjólabúnaður vélarinnar í lendingu á flugvellinum í borginni Port Harcourt í Nígeríu.
Hægra hjólastellið skemmdist í lendingunni
TC-LOL var að fljúga sitt fyrsta millilandaflug þennan dag sem var áætlunarflug frá Istanbúl til Port Harcourt
en annmarkar voru á aðflugsleiðsögubúnaði á flugvellinum í Port Harcourt sem varð til þess að flugmennirnir
rugluðust á flugbrautarljósum og lenti vélin fyrir utan brautina með hægra hjólastellið sem fór yfir flugbrautarljós.
TC-LOL er níu ára gömul og flaug hún fyrst fyrir Singapore Airlines árið 2011 en 5 árum síðar fékk
þotan íslensku skráninguna TF-GAY er hún varð fyrsta breiðþota WOW air sem fékk hana
í flotann árið 2016.
Fluginu til baka til Istanbúl var aflýst og hefur TC-LOL verið föst á flugvellinum í Port Harcourt síðan á gamlársdag.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.