flugfréttir
CFM eykur samstarfið við Airbus vegna óvissu með 737 MAX
- Munu einblína meira á framleiðslu á LEAP-1A hreyflinum fyrir A320neo
LEAP-1B hreyfillinn á Boeing 737 MAX
Hreyflaframleiðandinn General Electric og fyrirtækið Safran munu á næstunni auka samstarfið við Airbus til muna þar sem Boeing mun í þessum mánuði hætta framleiðslu tímabundið á Boeing 737 MAX þotunum.
Það er CFM International, samstarfsfyrirtæki GE Aviation og Safran, sem hefur framleitt LEAP-1B hreyfilinn fyrir Boeing 737 MAX þoturnar en framleiðandinn segir að þar sem framtíð þotunnar er í óvissu þá mun fyrirtækið snúa sér alfarið til Airbus til að einblína á framleiðslu á LEAP-1A hreyflinum
fyrir Airbus A320neo þoturnar af meiri krafti.
LEAP-hreyflarnir er eini valkosturinn fyrir Boeing 737 MAX þoturnar en í mörgum tilvikum hafa viðskiptavinir getað
valið á milli tveggja tegunda af hreyflum þegar lögð er inn pöntun í nýjar farþegaþotur.
Framleiðsluáætlun vegna LEAP-hreyflana fyrir árið 2020 hefur gert ráð fyrir að um 60% hreyfla fari til Airbus
og um 40 prósent til Boeing en fram kemur að kyrrsetning Boeing 737 MAX þotnanna hafi nú þegar kostað
General Electric um 172 milljarða króna þar sem greiðslur hafa ekki borist vegna tafa á afhendingum.
CFM International hefur hinsvegar hagnast á vandamálum með hreyflana sem samkeppnisaðilinn Pratt & Whitney hefur framleitt fyrir Airbus A320neo þoturnar og hafa nokkur flugfélög ákveðið að hætta við þá hreyfla og skipt yfir í
LEAP-1A hreyflana.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.