flugfréttir
Spirit Airlines staðfestir pöntun í 100 þotur frá Airbus
- Eiga von á Airbus A319neo þotum, A320neo og Airbus A321
Airbus A320neo þota Spirit Airlines
Airbus hefur tilkynnt um að bandaríska lágfargjaldafélagið Spirit Airlines hafi gengið formlega frá pöntun í 100 farþegaþotur úr Airbus A320neo fjölskyldunni.
Spirit Airlines gerði samkomlag um pöntunina í október sl. og hefur félagið núna staðfest pöntunina en Spirit Airlines
hefur pantað blöndu af þotum af gerðinni Airbus A319neo, A320neo og Airbus A321neo.
Félagið mun fá þoturnar afhentar alveg fram til ársins 2027 en Spirit Airlines hefur í flota sínum í dag 144 þotur
af gerðinni Airbus A319, A320 og Airbus A321 auk þess sem félagið hefur fengið tuttugu Airbus A320neo þotur
afhentar.
Spirit Airlines er sjöunda stærsta flugfélag Bandaríkjanna en félagið flýgur milli 75 áfangastaða í Bandaríkjunum,
Mið-Ameríku, Suður-Ameríku auk áfangastaða í Karíbahafinu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.