flugfréttir
NTSB mun taka þátt í rannsókn á flugslysinu í Íran
Rannsóknarnefnd samgönguslysa í Bandaríkjunum (NTSB) segir að stofnunin muni taka þátt í rannsókn á slysinu
Rannsóknarnefnd samgönguslysa í Bandaríkjunum (NTSB) segja að nefndin muni taka þátt í rannsókn á flugslysinu í Íran er farþegaþota af gerðinni Boeing 737-800 frá Ukraine International Airlines fórst skömmu eftir flugtak frá Teheran þann 8. janúar síðastliðinn.
NTSB tekur ekki fram með hvaða hætti stofnunin ætlar að taka þátt í rannsókninni á slysinu þar sem írönsk stjórnvöld
hafa lýst því yfir að ekki sé vilji til þess að vinna að rannsókninni með aðkomu Bandaríkjanna.
NTSB tekur fram að stofnunin hafi fengið formlega tilkynningu varðandi flugslysið og vitnar í sáttmála
Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO) í viðauka Annex 13 er varðar flugslys og rannsóknir
á flugslysum og flugatvikum.
Samkvæmt Annex 13 kemur fram að það land skal leiða rannsókn á flugslysi þar sem slysið átti sér stað
eða nefna það land sem skal taka rannsóknina að sér ef svo ber undir. Þá eru öðrum löndum gert að taka þátt
ef þau búa yfir betri sérfræðiþekkingu til þess eða hafa yfir að ráð betri tækjum og aðbúnaði.
176 manns létu lífið í flugslysinu en flestir farþega um borð voru Íranir og Kanadamenn
Tilkynning NTSB kemur sama dag og yfirlýsing frá bandarískum stjórnvöldum sem tilkynntu í gær að þau hafi undir
höndum áreiðanlegar heimildir fyrir því að úkraínska farþegaþotan hafi verið skotin niður með flugskeyti.
Þá hefur myndbandi verið dreift, bæði í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum, sem á að sýna hvar flugskeyti er skotið
á loft að næturlagi og hæfir þotuna í flugtaki sem fellur logandi til jarðar.
Stjórnvöld í Íran hafa neitað því að flugskeyti hafi verið skotið í átt að þotunni af þeirra hálfu en þotan fórst nokkrum
klukkutímum eftir loftskeytaárás Írana á herstöðvar í Írak.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.