flugfréttir
Öllum flugvélum hjá Ernest hefur verið flogið í geymslu
- Félagið mun missa flugrekstarleyfið næstkomandi mánudag
Flugfloti Ernest Airlines
Svo virðist vera sem að rekstur ítalska flugfélagsins Ernest Airlines sé að liðast í sundur eftir að flugmálayfirvöld á Ítalíu tilkynntu að félagið muni missa flugrekstarleyfið þann 13. janúar ef félagið nær ekki að skila þar til gerðum gögnum til flugmálayfirvalda.
Ernest Airlines hefur afhent allar þær fjórar Airbus A320 þotur, sem félagið hafði í flota sínum, til eiganda sinna
og hefur þeim öllum verið flogið til mismunandi flugvalla þar sem þær fara í geymslu.
Þetta þykir marka upphafið að endi á þriggja ára sögu félagsins. Þotunum var flogið á mismunandi staði í Evrópu en þær eru í eigu mismunandi fyrirtækja.
Ein Airbus A320 þotan, sem ber skráninguna EI-GCC, er í eigu Mcquarie Air Finance en henni var flogið til Napólí
þann 4. janúar á meðan EI-LIN, sem er í eigu Blackbird Capital, var flogið til Amman í Jórdaníu. Þriðju þotunni (EI-LIX)
var hinsvegar flogið til Tarbes í Frakklandi.
Fjórða og síðasta Airbus A320 þotan (EI-FVG) flaug í gær áætlunarflug frá Tirana til Mílano og til baka og því næst
frá Tirana til Bologna og til baka en í nótt var henni loks flogið til Shannon á Írlandi í geymslu.
Flugfreyjur hjá Ernest Airlines:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.