flugfréttir

Sjúkraflugvél fór í sjóinn í Alaska

18. janúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 10:56

Sjúkraflugvélin sem fór í sjóinn bar skráninguna N546LM

Allir komust lífs af er sjúkraflugvél af gerðinni Beechcraft B200 King Air fór í sjóinn við Aleutianyjarnar í Alaska sl. fimmtudag.

Flugvélin var nýfarin í loftið frá Unalaska-Tom Madsen flugvellinum þegar hún fór í sjóinn skammt undan flugbrautinni í svartamyrkri snemma morguns.

Sjúkraflugvélin er starfrækt af Aero Air fyrir hönd LifeMed en töluverður vindur var er vélin fór í sjóinn en ekkert óeðlilega hvasst fyrir þennan árstíma.

Sjúkraflugvélin var á leið til bæjarins Adak á samnefndri eyju í eyjaklasanum sem er staðsettur í yfir 700 kílómetra fjarlægð til vesturs en til stóð að sækja sjúkling þangað til að koma undir læknishendur.

Bátur sem var á svæðinu var innan við hálftíma á staðinn og bjargaði þremur úr sjónum sem voru í flugvélinni

Orsök slyssins eru ókunn en fram kemur að óvænt vandamál hafi komið upp sem olli því að flugvélin nauðlenti á vatni.

Fram kemur að þriggja manna áhöfn, flugmaður, sjúkraflutningamaður og hjúkrunarkona, hafi komist úr vélinni með minnháttar meiðsl en bátur, sem var skammt undan, kom áhöfninni til bjargar á 20 mínútum og var þeim komið fyrir í björgunarbátum og siglt með þau í land. Flugvélin sökk hinsvegar á 18 til 30 metra dýpi







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga