flugfréttir
Með sárt ennið eftir að flugskóli í Kanada hætti starfsemi
- Margir höfðu greitt milljónir króna fyrir samtvinnað atvinnuflugnám
Nemendur í ATPL námi við Ottawa Aviation Services flugskólann árið 2018
Tugi flugnema við flugskólann Ottawa Aviation Services í Kanada sitja nú eftir með sárt ennið eftir að flugskólinn neyddist til þess að hætta starfsemi sinni skyndilega.
Flugskólinn hætti starfsemi sinni á dögunum eftir að flugmálayfirvöld í Kanada sviptu flugskólann réttindum til þess
að halda úti flugkennslu eftir að í ljós kom að flugskólinn uppfyllti ekki kröfur flugmálayfirvalda sem einkarekinn flugskóli.
Ottawa Aviation Services hefur verið starfræktur frá árinu 2015 og segir John Richardson, einn flugkennari sem ráðinn
var til starfa til skólans fyrir tveimur árum síðan, að hann hafi byrjað að taka eftir vandamálum í rekstri sl. sumar.
Einn af nemendum skólans í samtvinnuðu atvinnuflugnámi
Richardson segir að fyrstu vísbendingarnar voru þær að skólinn hætti að greiða starfsfólki laun og segir hann að skólinn
skuldi sér um 2.8 milljónir króna í laun. Richardson segir að margir flugkennarar hafi yfirgefið skólann vegna launamála
en margir hafi þó haldið áfram vegna samkenndar við nemendur.
Einn af nemendum við skólann er Simon Hanington, 39 ára gamall viðskiptaráðgjafi sem ákvað að breyta til og
elta drauminn um að verða atvinnuflugmaður en hann hefur greitt skólanum um 500.000 krónur á mánuði til þess
að taka allt flugnámið á 18 mánuðum. Hanington var tjá að ómögulegt væri að vera í fullri vinnu með náminu vegna
þess hversu strangt námið væri með þessu fyrirkomulagi en samtvinnað atvinnuflugnám krefst mikils aga og tíma að öllu jöfnu.
Þar sem Simon er viðskiptaráðgjafi ákvað hann að grenslast nánar fyrir um orsök vandamálsins hjá flugskólanum
og komst hann að því að margir nemendur höfðu aðeins flogið örfáum sinnum en samt greitt 500.000 krónur
á mánuði en sjálfur var hann komin með 20 flugtíma þegar skólinn lokaði dyrunum.
Erlendir nemendur hafi orðið verr úti en sumir þeirra sem koma frá löndum á borð við Kína höfðu greitt skólanum
um 11 milljónir króna fyrir námið. Einhverjir hafa náð að skrá sig í flugnám að nýju hjá öðrum flugskólum en vegna
þess hversu mikil aðsókn er í flugnám í Kanada vegna skorts á flugmönnum í heiminum þá er víða fullbókað hjá
öðrum flugskólum.
Simon Hanington er einn þeirra sem hefur þurft að leita nýrra leiða til þess að klára flugnámið
Talið er að flugfélög og flugiðnaðurinn í Kanada þurfi á 7.300 nýjum atvinnuflugmönnum að halda á næstu fimm árum
sem er 3.000 fleiri flugmenn en flugskólarnir í landinu ná að útskrifa.
Menntamálaráðuneytið í Kanda segist ætla að sjá til þess að nemendur við skólann fái aðgang að sérstökum
menntasjóði til þess að halda flugnáminu áfram í héraðinu og verði veitt aðstoð til þess að fá það endurgreitt sem
þeir höfðu þegar borgað fyrir hjá Ottawa Aviation Services.
Um 125 nemendur stunduðu flugnám við skólann rétt áður en hann hætti starfsemi sinni og voru um 40% nemenda
erlendir flugnemar.
Fram kemur að vonast sé til þess að flugskólinn geti hafið starfsemi sína að nýju með nýjum eigendum fyrir lok
þessa mánaðar en Richardson, flugkennari, efast um að það gangi upp þar sem flugskólinn hafi ekki neinar
kennsluvélar lengur og enga flugkennara.
Aðsókn í atvinnuflugnám hefur aukist til muna víðsvegar í heiminum á undanförnum árum en atvinnumöguleikar í fluginu eru almennt mjög góðir þar sem gríðarleg eftirspurn er eftir nýjum flugmönnum sem spáð er að muni aukast á næstu árum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.