flugfréttir
Flugþjónn féll frá borði á þotu hjá Finnair
Airbus A320 farþegaþota frá Finnair
Flugþjónn hjá flugfélaginu Finnair slasaðist er hann féll frá borði á farþegaþotu á flugvellinum í Helsinki á dögunum.
Þotan, sem er af gerðinni Airbus A320, var nýlent eftir flug frá Oulu í norðurhluta Finnlands. Flugþjónninn féll frá borði
niður á flughlaðið skömmu eftir að farþegarnir höfðu gengið frá borði en nýbúið var að fjarlægja stigann eftir að farþegarnir
höfðu yfirgefið vélina.
Flugþjónninn var fluttur á sjúkrahús og hlaut hann nokkur beinbrot en meiðsl hans eru ekki talin lífshættuleg. Fallið
var um 3,6 metrar.
Flugmálayfirvöld í Finnlandi hafa hafið rannsókn á atvikinu og mun Finnair aðstoða við rannsóknina til þess að fyrirbyggja
að slíkt atvik gerist ekki aftur en flugvélin hélt áfram hálftíma síðar í næsta flug til London Heathrow.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.