flugfréttir
Boeing sækir um lán upp á 10 milljarða bandaríkjadali
- Tapa 4 milljörðum króna á dag vegna vandamálsins með Boeing 737 MAX
Talið er að Boeing sé að tapa um 4 milljörðum króna á hverjum degi vegna vandamálsins með Boeing 737 MAX þoturnar
Sagt er að Boeing sé að fara fram á að sækja um lán vegna þess taps sem framleiðandinn hefur orðið fyrir vegna vandamálsins með Boeing 737 MAX þoturnar en samkvæmt bandarískum fjölmiðlum á flugvélarisinn nú í viðræðum við nokkra banka vestanhafs vegna láns upp á 10 milljarða bandaríkjadali sem samsvarar yfir eitt þúsund og tvöhundruð milljörðum króna.
Það var bandaríska sjónvarpsstöðin CNBC sem greindi fyrst frá í gær en fram kemur að Boeing hafi þegar tryggt sér vilyrði fyrir láni upp á 6 milljarða dali.
Samsetningarsalurinn í Renton þar sem Boeing 737 MAX hafa
verið framleiddar
Að meðaltali þá hefur Boeing tapað um 6 milljónum króna daglega á hverja Boeing 737 MAX þotu sem félagið
hefur framleitt en ekki náð að afhenda og má áætla að tapið vegna kyrrsetninguna vélanna kosti Boeing
um 4 milljarða króna á hverjum degi.
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) tilkynntu nýlega að sennilega sé ekki von á því að vélarnar fái vottun
vestanhafs fyrr en í mars en það gæti hinsvegar dregist fram í apríl eða lengur.
Boeing fær ekki greitt fyrir þær þotur sem framleiddar hafa verið eftir kyrrsetninguna í mars í fyrra fyrr en þær
verða afhentar og hefur Boeing greint frá því að kyrrsetningin hafi kostað framleiðandann um 9 milljarða dali en
sá kostnaður á eftir að aukast til muna þar sem framleiðslan á Boeing 737 MAX mun stöðvast tímabundið í janúar.
Sérfræðingar áætla að Boeing sé að tapa um 1 milljarði bandaríkjadölum á mánuði vegna vandamálsins en Boeing birti í síðustu
viku afkomu fyrirtækisins fyrir árið 2019 sem var ein versta afkoma framleiðandans í marga áratugi. Þá afhenti
Boeing mjög fáar flugvélar í fyrra samanborið við síðustu ár og voru afhendingartölurnar þær lægstu í 11 ár.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.