flugfréttir
Ætla að byrja alveg upp á nýtt
- Boeing stefnir á að byrja með hreint blað er varðar nýja framtíðarþotu
Í fyrra taldi Boeing að ný framtíðarþota myndi koma á markað um miðjan þennan áratug
Boeing hefur tilkynnt að framleiðandinn ætli að byrja alveg upp á nýtt varðandi þær áætlanir sem gerðar höfðu verið með drög að nýrri farþegaþota sem var komin á teikniborðið.
Boeing hefur kallað farþegaþotuna „New Mid-Market Aircraft“ en talið er að framtíðarþotan muni síðar
fá nafnið Boeing 797. Búið var að setja saman sérstakan hóp af verkfræðingum og hönnuðum til þess að útfæra
fyrstu skrefin auk þess sem viðræður voru hafnar við mögulega viðskiptavini til að ákveða stærð þotunnar
og fjölda farþega.
Vegna ýmissa breytinga sem hafa átt sér stað í flugiðnaðinum hefur Boeing ákveðið að byrja upp á nýtt
með hreint blað er kemur að nýrri framtíðarþotu og verður einblínt á flugvél með tilliti til flugmannanna er kemur
að stjórnklefanum og eiginleikum.
„Við ætlum að fara nýjar leiðir. Við munum byrja eiginlega með hreint blað, aftur“, segir David Calhoun, framkvæmdarstjóri
Boeing, aðspurður um hvað væri að frétta af nýju þotunni á blaðamannafundi sem fram fór í gær.
Calhoun segir að Boeing muni samt sem áður einblína á næstunni á núverandi vörumerki sem er Boeing 737 MAX
og verður unnið að því að bæta þá þotu og auka öryggisstaðla fyrirtækisins og ímynd framleiðandans.
David Calhoun, framkvæmdarstjóri Boeing
Nokkur ár eru síðan að Boeing tilkynnti að til stæði að setja nýja tegund af flugvél á teikniborðið sem myndi taka
um 270 farþega og hafa flugdrægi upp á allt að 5.000 nm mílur (9.300 kílómetra) en þá stóð til að sú þota
myndi koma á markaðinn um miðjan þennan áratug og verða sameiginlegur arftaki fyrir Boeing 757 og Boeing 767.
NMA-verkefnið hefur að undanförnu verið í biðstöðu þar sem Boeing hefur haft nóg á sinni könnu er varðar
vandamál með Boeing 737 MAX en á meðan hefur Airbus kynnt nýja þotu til leiks, Airbus A321XLR, sem virðist
ætla að taka yfir sama markað og NMA-flugvélin (Boeing 797).
Calhoun segir að það sé ljóst að Boeing verði að koma með nýja hönnun er kemur að stjórnkerfi og hugbúnaði
og hvernig það vinnur með flugmönnum, eitthvað sem hefur verið mikið til umræðu er varðar Boeing 737 MAX.
„Við gætum þurft að byrja á hugmyndafræðinni með stjórnkerfi vélarinnar áður en við förum að hanna flugvélina sjálfa“, segir
Calhoun sem bætir því við að öll ákvörðunartaka er kemur að hönnun þarf að taka inn í myndina öll tengsl
milli flugmanns og flugvélarinnar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.