flugfréttir
Þota fór yfir dráttarbeisli í lendingu sem lá á brautinni
- Flugmaður á Cessna Centurion gleymdi að fjarlægja beislið fyrir flugtak
Atvikið átti sér stað á London Southend flugvellinum í ágúst í fyrra / Tölvugerð mynd
Bresk flugmálayfirvöld hafa rannsakað atvik sem átti sér stað í ágúst í fyrra er farþegaþota af gerðinni Embraer ERJ-145 frá skoska flugfélaginu Loganair fór yfir dráttarbeisli í lendingu sem lá á flugbrautinni.
Atvikið átti sér stað á London Southend flugvellinum í Bretlandi þann 7. ágúst árið 2019 en talið er að
flugmaður á flugvél af gerðinni Cessna P210N Pressurized Centurion hafi gleymt að fjarlægja dráttarbeislið af vélinni.
Beislið losnaði af í flugtaki og féll til jarðar á flugbrautina en eftir það höfðu tvær aðrar flugvélar notað
brautina, ein Piper PA-28 flugvél sem lenti skömmu síðar og ein Britten-Norman Islander flugvél sem fór í loftið
eftir það.
Því næst kom Embraer-þota frá Loganair inn til lendingar eftir áætlunarflug frá Aberdeen en í skýrslu frá rannsóknarnefnd flugslysa í Bretlandi
kemur fram að starfsmaður flugvallarins hafi framkvæmt skoðun á brautinni eftir að Piper PA-28 flugvélin fór í loftið
án þess að koma auga á neinn aðskotahlut á brautinni.
Mynd af dráttarbeisluni sem fannst á brautinni
Flugstjóri Loganair á Embraer-þotunni sagðist hafa séð torkennilegan hlut á brautinni, hægra megin við miðlínu, í um
10 metra fjarlægð, er vélin kom inn til lendingar en þá var þotan á um 110 kt hraða.
Flugstjórinn sagði hafa fundið smá fyrir því að það væri eins og hjól vélarinnar hefði farið yfir eitthvað í lendingarbruninu
sem hann skynjaði í gegnum hliðarstýrisfótstigin. Hann sagði ekki vera viss um hvort það væri þar sem hjólin hefðu
farið yfir hlutinn á brautinni eða hvort það var þar sem nefhjólið hefði farið yfir miðlínuljósin sem algengt er.
Eftir lendingu lét áhöfnin flugturninn vita og var starfsmaður sendur á staðinn og fannst þar dráttarbeisli á brautinni. Í
skýrslunni kemur fram að talið sé að Embraer-þotan hafi farið yfir beislið án þess að hafa valdið skemmdum.
Flugvélin sem um ræðir ber skráninguna G-CDMH
Fram kemur að mögulega hafi starfsmaðurinn ekki komið auga á beislið er hann framkvæmdi brautarskoðun þar
sem megintilgangur vettvangsferðarinnar í þetta skipti var að hafa auga með fuglum og hafi athygli hans
því verið aðallega á himininn heldur en á brautina sjálfa.
Var annars hugar vegna atviks á leiðinni út á flugvöll
Þá segir í skýrslunni að flugmaðurinn, sem flaug Cessna Centurion vélinni, hafi sennilega verið annars hugar
þar sem hann lenti næstum því í árekstri á mótorhjóli sínu við hjólreiðarmann sem fór í veg fyrir hann á leiðinni út á flugvöll.
Skýrslan telur að sennilega hafi það komið honum í uppnám og haft áhrif á fyrirflugsskoðunina og hann gleymt
að fjarlægja dráttarbeislið fyrir brottför þar sem hann var utan við sig. Einnig kemur fram að flugmaðurinn gleymdi einum bakpoka á Southend-flugvellinum
fyrir brottför sem undirstrikar enn frekar að hann var annars hugar.
Flugmaðurinn sagði að hann tók eftir einhverju undarlegu er hann ók í átt að flugbrautinni rétt fyrir flugtak en taldi mögulegt að loftþrýstingurinn í nefhjólinu væri of lítill.
Eftir að hann var komin í loftið og í farflugshæð fór hann að hugsa aftur um það hvernig vélin lét er hann var að „taxera“ og datt þá í hug að mögulega hefði hann gleymt að fjarlægja beislið af nefhjólinu. Flugmaðurinn hafði samband við Farnborough-flugumferðarstöðina og bað þá um að koma skilaboðum áleiðis til London Southend að mögulega hafi hann gleymt að fjarlægja beislið.
„Það getur verið freistandi að halda sig við áætlunina og fara í loftið þrátt fyrir eitthvað sem kemur upp á rétt fyrir flugið
án þess að gera sér grein fyrir að slíkt getur skert frammistöðu og getu til að fljúga í kjölfar“, segir í skýrslunni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.