flugfréttir
Þrjár konur reyndust „of stórar“ fyrir Business Class farrýmið
- Ekki sáttar við að hafa verið mældar með málbandi innan um aðra farþega
Business Class farrýmið um borð í Dreamliner-þotum Thai Airways
Þremur konum var meinað að fljúga á Business Class farrými um borð í Dreamliner-þotu tælenska flugfélagsins Thai Airways á þeim forsendum að þær voru „of stórar“.
Hin 59 ára Huhana Iripa var að ferðast með dætrum sínum tveimur, Tere (37 ára) og Renall (28 ára) frá Auckland á Nýja-Sjálandi til Bangkok
og voru þær að ganga um borð þegar starfsfólk á vegum Thai Airways kom að þeim við innritunarborðið og hóf að mæla mittið á annarri dótturinni með málbandi.
Niðurstöður leiddu í ljós að allar konurnar voru af breiðvaxnar fyrir sætisbeltin á Business Class farrýminu á Boeing 787-9 og var þeim úthlutað sæti á almennu farrými fyrir 11 klukkstunda langt flug til Bangkok.
Huhana Iripa segir að atvikið hafi verið mjög neyðarlegt og niðurlægjandi þar sem mitti þeirra var mælt fyrir framan fjölda farþega við innritunina
og hefur hún sent formlega kvörtun til Thai Airways en félagið hefur einungis boðist til þess að endurgreiða þeim mismuninn á farmiðanum.
Mæðgurnar, Renell Iripa (til vinstri), Tere Iripa (í miðjunni) og Huhana Iripa
Thai Airways innleiddi nýja reglugerð árið 2018 þar sem fram kemur farþegar, sem hafa mittisummál sem fer yfir 142 sentimetra, fá ekki að fljúga á Business Class farrýminu um borð í Boeing 787-9 þotunum.
Fram kemur að í flestum tilfellum sé hægt að nota framlengingu á sætisbelti ef um þéttvaxna farþega er að ræða en í þessu tilfelli þá koma
sætin um borð í Boeing 787-9 með sérstöku loftpúðakerfi sem virkar ekki eins og það á að gera ef framlengingin á beltinu er notuð.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.