flugfréttir

FAA: Boeing 737 MAX gæti snúið aftur fyrr heldur en síðar

- Segja að ferlið sé að ganga hraðar fyrir sig þessa daganna

27. janúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 23:10

Eftir 7 vikur verður liðið eitt ár frá því að Boeing 737 MAX þoturnar voru kyrrsettar

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa gefið í skyn að Boeing 737 MAX gæti snúið aftur fyrr en áætlanir Boeing gera ráð fyrir.

Boeing tilkynnti um daginn að flugfélög ættu ekki að búast við því að MAX þoturnar muni hefja sig á loft að nýju fyrr en um mitt sumarið eða jafnvel þegar líður að hausti en Steve Dickson, yfirmaður FAA, sagði fyrir helgi að mögulegt er að vottunarferlið taki ekki eins langan tíma eins og gert er ráð fyrir.

Dickson segir að flugmálayfirvöld séu ánægð með þann árangur sem náðst hefur hjá Boeing á undanförnum vikum og sé unnið hörðum höndum að því að fylgja eftir ströngu eftirlitsferli er kemur að vélunum og er verið að yfirfara öll öryggisatriði er varðar þær uppfærslur sem gerðar hafa verið á Boeing 737 MAX.

Engin af þeim þremur stærstu flugfélögum Bandaríkjanna, sem hafa Boeing 737 MAX í flota sínum, sem eru Southwest Airlines, American Airlines og United Airlines, búast við því að taka MAX vélarnar í notkun aftur fyrir sumarið og gera öll flugfélög ráð fyrir að sumarið muni líða hjá án Boeing 737 MAX vélanna.

Aldrei hefur neinn tímarammi verið settur upp varðandi endurkomu vélanna. Dickson hjá FAA gefur ekki upp neinar frekari upplýsingar varðandi möguleikann á að MAX vélarnar fjúgi fyrr en nýjar spár Boeing segja til um nema að ferlið er að ganga frekar hratt fyrir sig þessa daganna.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga