flugfréttir

Boeing 737-200 þota brann til kaldra kola í Pakistan

- Grunur leikur á að um íkveikju hafi verið að ræða

28. janúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 08:03

Boeing 737-200 þota Shaheen Air

Farþegaþota af gerðinni Boeing 737-200 brann til kaldra kola á flugvellinum í borginni Karachi í Pakistan sl. sunnudagskvöld.

Þotan, sem var í eigu pakistanska flugfélagsins Shaheen Air, hafði verið kyrrsett og hefur ekki flogið í tæpt ár en grunur leikur á að kveikt hafi verið í flugvélinni..

Flugmálayfirvöld í Pakistan hafa sett saman sex manna nefnd sem er ætlað að rannsaka brunann og er það fyrsta verk nefndarinnar að komast að því hvort að um íkveikju af mannavöldum hafi verið að ræða.

Næstu skref er að meta tjónið og því næst að koma með tillögur um aðgerðir til að fyrirbyggja að frekari atvik líkt og þetta endurtaki sig.

Tilkynnt var um eld í Boeing 737-200 farþegaþotu á flugvellinum í Karachi sl. sunnudagskvöld

Shaheen Air varð gjaldþrota fyrir ári síðan í febrúar árið 2019 en stjórn félagsins hafði ítrekað verið beðin um að fjarlægja Boeing 737-200 þotu félagsins sem hefur verið mánuðum saman að grotna niður á flugvallarsvæðinu í Karachi.

Flugvallarlögreglan á Karachi-flugvellinum hafði einnig skrifað bréf til pakistanskra flugmálayfirvalda þar sem lýst var yfir áhyggjum vegna kyrrsettrar farþegaþotu þar sem hún skapaði hættu og laðaði að sér fugla sem gætu farið að búa sér til hreiður inni í vélinni.

Flugvélin sem brann sl. sunnudag var 37 ára gömul, smíðuð árið 1983, og hefur hún verið í rekstri Air France, Air Sicilia og Nationwide Airlines en vélin var afhent til Shaheen Air árið 2010.

Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga