flugfréttir

Kennsla hafin í nýrri flugakademíu Qantas í Ástralíu

- Stefna á að þjálfa allt að 250 nemendur á ári

29. janúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 07:38

Fyrsti hópurinn af nýju flugnemunum við flugakademíu Qantas telur 34 nemendur

Qantas hefur tekið í notkun sinn eigin flugskóla á Toowoomba Wellcamp flugvellinum í Ástralíu en þar er gert ráð fyrir að hægt verði að þjálfa 250 nýja flugmenn á ári.

Með þessu ætlar Qantas að koma til móts við þeim skorti sem er á flugmönnum í heiminum og tryggja sér stöðugt flæði af nýjum flugmönnum en flugskólinn mun þjálfa umsækjendur alveg frá grunni frá því að þeir stíga sín fyrstu skref og ljúka þeir náminu með atvinnuflugmannsskírteini.

„Opnunin á nýju flugakademíu Qantas er stórt skref í sögu Qantas, fyrir flugið í Ástralíu og fyrir þá þúsundir framtíðarflugmenn sem eiga eftir að læra að fljúga hérna í Toowoomba“, segir Alan Joyce, framkvæmdarstjóri Qantas.

Flugskólinn mun útskrifa nýja flugmenn fyrir Qantas, Jetstar Airways og fyrir QantasLink sem annast innanlandsflugið í landinu fyrir Qantas.

Áætlað er að um 100 nemendur muni leggja stund á flugnám við skólann fyrir lok ársins

Með flugskólanum kemur 1.500 fermetra flugskýli, fjórir flughermar, kennslustofur og herbergi fyrir flugáætlunargerð og fundi þar sem farið er yfir árangur að loknu flugi. Flugnemar munu læra að fljúga með Diamond DA40 og DA42 kennsluvélum.

Fyrr í þessum mánuði hóf fyrsti hópurinn nám við flugakademíu Qantas en sá hópur samanstendur af 34 nýjum nemendum sem hefja námið á PPL-hlutanum en gert er ráð fyrir að 100 nemendur muni stunda flugnám í skólanum fyrir lok ársins.

Flugakademían í Toowoomba verður sú fyrsta af þeim tveimur flugskólum sem Qantas stefnir á að opna en hinn skólinn mun opna í bænum Mackey sem er líka í Queensland-ríki.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga