flugfréttir
Vara við uppsögnum vegna seinkana á MAX vélunum
- Gerðu ráð fyrir tíu Boeing 737 MAX þotum í rekstri í sumar
Ein af þeim Boeing 737 MAX þotum sem smíðaðar hafa verið fyrir Ryanair
Ryanair hefur enn og aftur varað flugmenn sína við niðurskurði en í tilkynningu sem félagið hefur sent starfsfólki sínu kemur fram að mögulega mun félagið fækka starfsstöðvum og grípa til uppsagna.
Ástæðan er sögð vera vegna seinkana á afhendingum á Boeing 737 MAX þotunum vegna kyrrsetningarinnar en lágfargjaldafélagið írska
segir að allt bendi til þess að fyrstu Boeing 737 MAX þoturnar verða ekki afhendar fyrr en í haust.
Ryanair segir að Boeing muni ekki afhenda félaginu fyrstu 737 MAX vélarnar fyrr en í október og í allra fyrsta lagi í september en fyrir tveimur mánuðum
síðan sagði Ryanair að félagið væri að vonast eftir því að geta fengið fyrstu þoturnar afhentar í mars eða apríl til að geta undirbúið þær fyrir
sumarvertíðina.
Félagið segir í skilaboðum til starfsmanna að verið sé að fara yfir stöðuna og gera drög að uppsögnum á næstu vikum og verður starfsfólk
látið vita um niðurskurðaraðgerðirnar á fyrstu tveimur vikunum í febrúar.
Ryanair segir að sumaráætlun félagsins í ár tók mið af því að félagið væri komið með að minnsa kosti tíu Boeing 737 MAX þotur
og þarf félagið því á næstunni að hagræða seglum eftir vindi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.