flugfréttir

Brandenburg-flugvöllur óskar eftir 20.000 sjálfboðaliðum

30. janúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 11:44

Frá flugstöðinni á Brandenburg-flugvellinum í Berlín

Stjórn Brandenburg-flugvallarins í Berlín hefur óskað eftir 20.000 sjálfboðaliðum til að aðstoða við tilraunir á flugstöðinni en til stendur að prufukeyra flugstöðina með tilliti til farþegafjölda á næstu mánuðum.

Prófanirnar munu eiga sér stað yfir nokkur 30 daga tímabil og munu sjálfboðaliðarnir „leika“ flugfarþega en niðurstöðurnar verða notaðar til þess að sjá hvernig flugstöðin er í stakk búin til þess að taka á móti farþegum.

Til stendur að taka Brandenburg-flugvöllinn í notkun þann 31. október 2020 en prófanirnar á flugstöðinni hefjast 29. apríl næstkomandi og verða sjálfboðaliðarnir látnir fara um mismunandi svæði í flugstöðinni.

Þá verður hermt eftir rýmingu vegna neyðarástands þar sem 1.000 sjálfboðaliðar verða látnir yfirgefa flugstöðina á eins skömmum tíma og hægt er.

Frá 23. júní fram til 15. október munu fara fram hefðbundnar prófanir á flæði farþega um flugstöðina og líkt eftir venjulegum degi í rekstri þar sem farþegar ganga til og frá innritunarborði, gegnum öryggisleit og að brottfararhliði.

Fram kemur að þeir sem elska flug og flugvelli eru sérstaklega hvattir til þess að taka þátt í tilraununum og fá þeir með því tækifæri á að vera með þeim fyrstu til að sjá og upplifa nýju flugstöðina á Brandenburg-flugvellinum en í staðinn fá þeir ókeypis mat og drykk.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga