flugfréttir

Jet2.com og Jet2CityBreaks fjölga flugferðum til landsins

- Fleiri áætlunarflug næsta vetur og fleiri sérferðir

31. janúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 13:14

Boeing 737 þota Jet2.com á Keflavíkurflugvelli

Breska flugfélagið Jet2.com og ferðaskrifstofan Jet2CityBreaks ætla að fjölga áætlunarflugferðum hingað til lands veturinn 2020 - 2021 með áætlunarflugi frá Birmingham og Manchester í fyrsta sinn, ásamt sérferðum frá Stansted-flugvellinum í London, alþjóðaflugvellinum í Belfast og flugvellinum í Edinborg.

Það þýðir að félagið býður upp á ferðir til Íslands frá öllum níu starfsstöðvum sínum í Bretlandi. Flogið verður tvisvar í viku frá Manchester og Birmingham, á mánudögum og fimmtudögum frá 1. október til 23. nóvember og 11. febrúar til 26. apríl.

Þar að auki hafa Jet2.com og Jet2CityBreaks einnig fjölgað sérferðum sínum til Íslands og bjóða nú í fyrsta sinn upp á ferðir frá alþjóðaflugvellinum í Belfast, Edinborg og Stansted-flugvellinum í London.

Viðskiptavinir geta nú valið á milli 37 þriggja eða fjögurra nátta ferða til Íslands en 15 ferðir eru í október og nóvember og 22 frá febrúar og fram í apríl. Hægt er að kaupa stakt flugfar eða velja á milli pakkaferða með Jet2CityBreaks. Flogið er með Boeing 737-800-flugvélum.

Full dagskrá veturinn 2020/2021 er eftirfarandi:

Áætlunarflug verður tvisvar í viku frá Manchester og Birmingham í október og nóvember annars vegar, og frá febrúar og fram í apríl hins vegar.

37 ferðir til Íslands til að sjá norðurljósin: 15 ferðir í október og nóvember og 22 ferðir frá febrúar og fram í apríl.

Alþjóðaflugvöllurinn í Belfast – tvær glænýjar ferðir (ein í október og önnur í apríl).

Birmingham – glænýtt áætlunarflug hvern mánudag og fimmtudag frá 1. október til 23. nóvember og frá 11. febrúar til 26. apríl.

Edinborg – tvær spánnýjar ferðir (ein í október og önnur í apríl).

East Midlands-flugvöllurinn – alls fimm ferðir (ein í október, ein í nóvember og þrjár í mars).

Glasgow – alls fimm ferðir (tvær í október og ferðir í febrúar, mars og apríl).

Bradford-flugvöllurinn í Leeds – alls átta ferðir (ein í október, tvær í nóvember, tvær í febrúar, ein í mars og tvær í apríl).

Manchester – glænýtt áætlunarflug hvern mánudag og fimmtudag frá 1. október til 23. nóvember og frá 11. febrúar til 26. apríl.

Newcastle – alls tíu ferðir (tvær í október, tvær í nóvember, þrjár í febrúar, ein í mars og tvær í apríl).

Stansted-flugvöllurinn í London – alls fimm nýjar ferðir (ein í október, ein í nóvember og þrjár í mars).

„Eftir miklar vinsældir ferða okkar til Íslands er það okkur sönn ánægja að bjóða upp á aukna þjónustu veturinn 2020-2021," segir Steve Heapy, forstjóri Jet2.com og Jet2Holidays. „Ísland er áfangastaður sem vex hratt að vinsældum, þökk sé fjölbreyttum valkostum fyrir ferðalanga.“

„Við erum himinlifandi með þá ákvörðun Jet2.com að fjölga ferðum á milli Bretlands og Íslands næsta vetur. Við erum einnig spennt fyrir nýjum áfangastöðum sem leiða af sér fleiri beinar flugferðir til Íslands, segir Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri viðskiptasviðs og tækni- og eignasviðs Keflavíkurflugvallar.

„Breskir flugfarþegar er mikilvægur ferðamannahópur fyrir okkur á Keflavíkurflugvelli og fyrir íslenska ferðamannaiðnaðinn í heild sinni. Við erum í mjög góðu samstarfi við Jet2.com og hlökkum til að halda því áfram um ókomin ár.“







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga