flugfréttir

Ryanair ætlar að panta fleiri Boeing 737 MAX þotur

- Stefna á að leggja inn pöntun í Boeing 737 MAX 10

4. febrúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 07:24

Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair

Þrátt fyrir alla þá erfiðleika sem Boeing hefur gengið í gegnum með Boeing 737 MAX vélarnar þá hefur Ryanair fulla trú á því að þotan eigi eftir að hafa yfirburða eiginleika þegar hún verður komin aftur í umferð og ætlar lágfargjaldafélagi írska að leggja inn pöntun í enn fleiri MAX-vélar.

Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, tilkynnti í gær að félagið stefni á að leggja inn pöntun í Boeing 737 MAX 10 en félagið á nú þegar von á 210 þotum af gerðinni Boeing 737 MAX 200 sem er sérstök lágfargjaldarútgáfa af 737 MAX sem Boeing kynnti formlega árið 2014.

„Við eigum í viðræðum við Boeing og erum að fá tilboð hjá þeim í fleiri MAX-þotur af gerðinni Boeing 737 MAX 10 sem er enn stærri og kemur með sætum fyrir 230 farþegar“, sagði O´Leary í gær.

Ólíklegt er þó að Ryanair eigi eftir að ganga frá nýrri pöntun í fleiri MAX-þotur fyrr en búið er að aflétta kyrrsetningu vélanna og þær komna aftur í umferð.

Ryanair gerði upphaflega ráð fyrir að vera komið með 55 MAX-vélar í umferð fyrir sumarið 2020 en félagið sér fram á að fyrstu vélarnar verða ekki afhentar fyrr en í október í haust.

Ryanair segir að Boeing 737 MAX sé byltingarkennd þota sem eigi eftir að verða allt að 16% sparneytnari en núverandi floti félagsins sem samanstendur af Boeing 737-800 þotum en þá mun Boeing 737 MAX 200 taka 4 prósent fleiri farþega.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga