flugfréttir
Etihad selur 38 breiðþotur úr flotanum
Boeing 777-300ER og Airbus A330-200 þotur Etihad Airways á flugvellinum í Abu Dhabi
Etihad Airways hefur náð samningi um sölu á 38 breiðþotum af gerðinni Boeing 777 og Airbus A330 sem félagið ætlar að selja frá sér til tveggja fyrirtækja sem munu kaupa vélarnar af félaginu.
Vélarnar sem Etihad Airways er að selja frá sér eru sextán Boeing 777-300ER þotur, sex Airbus A330-300 breiðþotur og
sextán A330-200 breiðþotur en félagið mun fá einn milljarð bandaríkjadali fyrir vélarnar eða um 124 milljarða króna.
Kaupendurnir tveir eru alþjóðafjárfestingarfyrirtækið KKR og Altavair AirFinance en Boeing 777-300ER þoturnar mun
Etihad Airways leigja til baka og hafa áfram í flotanum en Airbus A330 þoturnar verða leigðar til annarra flugfélaga.
Etihad Airways á 19 Boeing 777-300ER þotur og mun félagið því sjálft halda þremur þotum í sinni eigu en félagið hefur
hinsvegar lagt öllum Airbus A330-300 breiðþotunum en hefur tíu A330-200 breiðþotur enn í flotanum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.