flugfréttir

Biðja 27.000 starfsmenn um að taka sér 3 vikna launalaust leyfi

- Mjög erfiður rekstur vegna mótmæla og kórónavírusins

5. febrúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 12:10

Flugvélar Cathay Pacific á flugvellinum í Hong Kong

Kínverska flugfélagið Cathay Pacific hefur beðið allt starfsfólk sitt um að taka sér þriggja vikna launalaust leyfi en 27.000 manns eru á launaskrá hjá félaginu.

Þykir þetta endurspegla hversu erfiður róðurinn er orðinn fyrir Cathay Pacific en reksturinn tók á sig mikinn skell er mótmæli og óeirðir brutust út í Hong Kong í fyrra og þá hefur úrbreiðsla kórónavírusins gert félaginu enn erfiðara fyrir.

Augustus Tang, framkvæmdarstjóri Cathay Pacific, kom skilaboðum áleiðis til starfsfólksins í myndbandsávarpi sem sent var til starfsmanna þar sem hann biður alla um að taka sér leyfi í þrjár vikur á öðrum árshelmingi þessa árs en hann segir að mjög krefjandi tímar séu framundan í rekstrinum.

„Ég geri mér grein fyrir því að það er erfitt að heyra þetta og við gætum þurft að grípa til enn frekari aðgerða á næstunni. Ef þið takið að ykkur launalaust leyfi þá eruð þið með því að aðstoða okkur og létta róðurinn“, sagði Tang.

Cathay Pacific hefur fellt niður 90% af öllu áætlunarflugi til meginlands Kína en kórónavírusinn kemur sér sérstaklega illa fyrir flugfélagið þar sem stór hluti af leiðarkerfi félagsins nær til kínverskra borga.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga