flugfréttir

Airbus mælir með „vökvafríu“ svæði í stjórnklefum á A350

- EASA fyrirskipar viðbót í flughandbók á Airbus A350

6. febrúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 07:48

Stjórnklefinn á Airbus A350 þotunni

Airbus hefur fyrirskipað öllum þeim flugfélögum sem hafa Airbus A350 þotuna í flota sínum að tilgreina sérstakt vökvafrítt svæði í stjórnklefanum í kjölfar tveggja tilfella sem hafa komið upp nýlega þar sem flugmenn óvart helltu kaffi eða te yfir viðkvæm stjórntæki.

Í báðum tilvikum ollu atvikin því að bilun kom upp í hreyfli þar sem rafeindabúnaður fékk vökva yfir og þurftu flugmennirnir að lenda á næsta flugvelli.

Evrópsk flugmálayfirvöld (EASA) hafa varað við því að atvik, þar sem flugmenn óvart hella drykkum yfir svæði þar sem takkar eru staðsettir sem stjórna ræsingu á hreyflum, geta ollið því að báðir hreyflarnir drepa á sér skyndilega.

Bráðabirgðarskýrsla í kjölfar atvikanna tveggja, þar sem flugmenn á Airbus A350 þotu frá Delta Air Lines og A350 þotu frá Asiana Airlines helltu kaffi yfir stjórntækjaborð milli flugmannanna tveggja, gefur í skyn að óeðlileg virkni hafi átt sér stað í kerfi sem stjórnar inngjöf inn á hreyflana.

Airbus hefur birt tímabundin meðmæli sem viðbót við flugvélahandbók vélanna sem tilgreinir svokallað „liquid prohibited zone“ í stjórnklefanum auk leiðbeininga sem flugmenn geta fylgt eftir ef þeir skvetta úr kaffibolla yfir stjórntækjabúnað.

EASA hefur fyrirskiptað flugfélögum, sem hafa Airbus A350-900 og A350-1000 þoturnar í flota sínum, að innleiða breytingu á flugvélahandbókinni vegna kaffisullsatvika.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga