flugfréttir

Airbus með pantanir í 274 þotur í janúar

9. febrúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 20:19

Nýjar farþegaþotur við verksmiðjur Airbus í Toulouse í Frakklandi

Airbus fékk pantanir í 274 nýjar farþegaþotur í janúar sl. en á sama tíma afhenti flugvélaframleiðandinn 31 þotu.

Pantanir í janúar voru lagðar inn fyrir Airbus A220 þotuna, þotur úr Airbus A320neo fjölskyldunni auk þess sem framleiðandinn fékk pantanir í Airbus A350.

Stærsta pöntunin var staðfest pöntun frá Spirit Airlines sem lagði inn pöntun í yfir 100 þotur úr Airbus A320neo fjölskyldunni en flugfélagið pantaði í seinasta mánuði 47 Airbus A319neo þotur, 33 Airbus A320neo þotur og tuttugu þotur af gerðinni A321neo.

Þá pantaði bandaríska flugvélaleigan Air Lease Corporation 102 þotur af gerðinni Aibus A220-300, A321neo og A321XLR og er fyrirtækið nýjasti viðskiptavinurinn til þess að panta Airbus A321XLR.

Meðal annarra viðskiptavina sem lögðu inn pantanir til Airbus í janúar voru China Aircraft Leasing (CALC) og BOC Aviation í Singapore.

Fjöldi pantaðra flugvéla í janúar taldi 296 þotur en þá voru afpantaðar 22 þotur og lækkaði heildarfjöldi pantanna því niður í 274 þotur.

Heildarfjöldi þeirra flugvéla sem Airbus á eftir að smíða og afhenda stendur í dag í 7.725 flugvélum en af þeim eru 6.249 úr Airbus A320 fjölskyldunni, 551 af gerðinni A220, 330 af gerðinni Airbus A330, 586 Airbus A350 þotur og þá á eftir að afhenda níu Airbus A380 risaþotur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga