flugfréttir
Fyrsta flug Gulfstream G700
Gulfstream G700 einkaþotan í flugtaki í fyrsta fluginu
Nýja Gulfstream G700 einkaþotan flaug um helgina sitt fyrsta flug og hefjast þar með formlega flugprófanir fyrir þessa nýju einkaþotu sem á að koma á markaðinn árið 2022.
Fyrsta tilraunareintakið af Gulfstream G700 hóf sig á loft frá flugvellinum í Savannah í Georgíu sl. föstudag
og stóð fyrsta flugið yfir í 2 klukkustundir og 32 mínútur.
Fimm G700 tilraunaþotur hafa verið framleiddar og hafa aksturprófanir þegar farið fram en fyrstu flugprófanir, sem nefnast T1, munu einblína á tilraunir með „flutter“, ofris, flugeiginleika, stýrisfleti og ísingu.
Næstu prófanir, sem nefnast T2, taka mið af flugprófunum með innréttingum, T3 prófanir gera ráð fyrir tilraunum
með hleðslu, aflstillingar á hreyflum, eiginleikum á flugbraut í flugtaki og lendingum og prófanir með klifurgetu.
Stjórnklefinn í nýju Gulfstream G700 einkaþotunni
Því næst taka við T4 prófanir þar sem gerðar verða tilraunir með stjórntæki og mæla, flug við ísingarskilyrði, loftræstikerfi
og að lokum tekur við T5 þar sem mælar og skjáir í stjórnklefa verða prófaðir.
Gulfstream G700 er knúin áfram með Pearl 700 hreyflum frá Rolls-Royce og kemur einkaþotan með allra nýjustu tækni er kemur að stjórnskjáum og búnaði í stjórnklefa sem er samhverfur flugstjórnarklefi með fjóra, stóra stjórnskjái, snertiskjái, sérstökum lendingarhugbúnaði með flugbrautaröryggiskerfi auk fleiri nýjunga.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.