flugfréttir
Qatar Airways tryggir sér fjórðungshlut í móðurfélagi BA
- Stækka eignarhlut sinn í IAG upp í 25.1 prósent
Qatar Airways keypti fyrst hlut í International Airlines Group (IAG) árið 2015
Qatar Aiways hefur keypt frekari hlut í International Airlines Group (IAG), móðurfélagi British Airways og Iberia, fyrir um 600 milljónir bandaríkjadali (76 milljarða króna).
Eignarhlutur Qatar Airways í IAG eykst því úr 21.4% upp í 25.1 prósent og á félagið
því nú fjórðungshlut í bresku flugfélagasamsteypunni.
„Fjárfestingar okkar í dag hafa verið mjög árangursríkar og endurspeglar þetta
frekari stuðning okkar við IAG og stefnu þeirra“, sagði Akbar Al Baker, framkvæmdarstjóri
Qatar Airways.
Qatar Airways keypti fyrst hlut í IAG árið 2015 en sá eignarhlutur nam 9.99 prósentum
í móðurfélaginu en síðan þá hefur félagið sífellt aukið hlut sinn jafnt og þétt.
Auk British Airways og Iberia þá er IAG einnig móðurfélag spænska lágfargjaldafélagsins Vueling,
Aer Lingus, IAG Cargo, LEVEL og Level Europe.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.