flugfréttir
Atlas Air selur og leggur fraktþotum vegna samdráttar
- Segja að eftirspurn eftir fraktflugi í heiminum hafi dvínað
Júmbó-fraktþotur Atlas Air
Fraktflugfélagið Atlas Air segir að félagið hafi frá áramótum lagt fjórum júmbó-fraktþotum af gerðinni Boeing 747-400F vegna samdráttar í eftirspurn eftir fraktflugi í heiminum.
Þá segir félagið að til standi að skila einni Boeing 747-400F fraktþotu til flugvélaleigu sem er eigandi vélarinnar
en John Dietrich, framvæmdarstjóri Atlas Air, segir að vöruflutningaflug í heiminum hafi dregist örlítið saman árið 2019.
„Þegar svona ber undir þá eru það yfirleitt þær flugvélar sem eru hvað minnst hagkvæmdastar sem fara fyrst úr
flotanum þannig við ákvæðum að kyrrsetja fyrst Boeing 747-400F þoturnar“, segir Dietrich.
Boeing 747-400F fraktþota Atlas Air í flugtaki frá flugvellinum í Chicago
Fram kemur að félagið geti hvenær sem er fengið vélarnar aftur ef markaðurinn breytist
en Atlas Air er einnig að íhuga að selja þrjár fraktþotur sem félagið á en félagið hefur nú þegar gengið frá sölu
á einni Boeing 757-200F þotu og er áætlað að selja eina Boeing 737 farþegaþotu úr flotanum og eina
Boeing 777F fraktþotu.
Móðurfélag Atlas Air er Atlas Air Worldwide Holdings sem á og rekur þrjú flugfélög, Atlas Air, Polar Air Cargo og Southern Air.
Flugfloti fyrirtækisins samanstendur af 122 þotum af gerðinni Boeing 737-300F, 737-400SF, 737-800, 737-800BCF, Boeing 747-400,
747-400BCF, 747-400BDSC, 747-400ERF, 747-400F, Boeing 747-8F, Boeing 757-200F, Boeing 767-200, Boeing 767-200ER,
Boeing 767-300ER, 767-300ER/BCF, 767-300ERF og Boeing 777F.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.