flugfréttir
Hóf flugtak með fótstig í fastri stöðu og fór út af braut
- Vissi ekki að hægt væri að festa fótstigin hægra megin sérstaklega
Flugmaðurinn, sem var 72 ára, og farþegi hans sluppu með minniháttar skrámur
Rannsóknarnefnd samgönguslysa í Bandaríkjunum (NTSB) gaf í vikunni út skýrslu varðandi flugslys sem átti sér stað í Bandaríkjunum er lítil einshreyfils Cessna fór út af flugbraut í flugtaksbruni í smábæ í Alaska.
Flugmaður vélarinnar sagði eftir slysið að hann kaus að sitja í hægra sætinu á flugvélinni sem var af gerðinni
Cessna 207 Skywagon til þess að leyfa félaga sínum, sem var hlaðmaður á flugvellinum, að sitja í vinstra sætinu.
Akstursvegalengdin frá hlaði að flugbrautinni var frekar stutt og krafðist mjög lítillar notkunar á hliðarstýrum. Þegar flugmaðurinn
setti fullt afl á mótorinn fyrir flugtak fann hann fljótlega fyrir því að hann átti í erfiðleikum með að nota fótstigin fyrir hliðarstýrið til
þess að leiðrétta og halda beinni stefnu eftir miðlínu brautarinnar.
Flugvélin leitaði til vinstri og fór út af brautinni á töluverðum hraða í bruninu án þess að takast á loft og endaði á nefinu eftir að nefhjólið brotnaði undan henni. Flugvélin skemmdist á vinstri hlið skrokksins auk þess sem hún varð fyrir tjóni á vinstri væng.
Fram kemur að á Cessna 207 Skywagon flugvélunum er hægt að festa hliðarstýrisfótstigið hægra megin en flugmanninum var ekki
kunnugt um það.
Er það mat NTSB að meginorsök flugslyssins megi rekja til þess að flugmaðurinn náði ekki að halda nefi vélarinnar í beinni stefnu
í flugtaksbruninu sem má rekja til þess að hann hafði ekki farið eftir tékklista fyrir brottför er varðar að athuga stýri
flugvélarinnar.
Slysið átti sér stað í bænum Newtok í Alaska þann 25. febrúar árið 2018. Flugmaðurinn, sem var 72 ára, hafði 21.930
flugtíma að baki og þar af 1.800 tíma á Cessna 207 Skywagon.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.