flugfréttir

Flugvélaframleiðandinn Piaggio Aerospace til sölu

- Leita eftir tilboðum frá áhugasömum aðilum

27. febrúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 08:53

Piaggio Aerospace er þekktast fyrir hina óvenjulegu Piaggio Avanti P.180 flugvél

Ítalski flugvélaframleiðandinn Piaggio Aerospace er til sölu en fyrirtækið mun á næstunni óska eftir tilboðum frá traustum aðilum sem hafa áhuga á að taka yfir reksturinn.

Það er Piaggio Aero Industries sem verður selt en það fyrirtæki er dótturfélag Piaggio Aviation en bæði fyrirtækin tilheyra Piaggio Aerospace.

Piaggio fékk í nóvember í fyrra leyfi frá stjórnvöldum á Ítalíu til þess að setja fyrirtækið á sölu og er stefnt að því að finna nýja eigendur sem gætu tekið við rekstri framleiðandans að öllu leyti.

Piaggio Aerospace er þekktast fyrir hina óvenjulegu Piaggio Avanti P.180 flugvél sem kom á markað árið 1986 og síðar kom Piaggio Avanti Evo á markað árið 2013.

Fram kemur að fyrirtækið ætti að vera freistandi kostur í augum kaupenda þar sem framleiðandinn hefur þegar tryggt sér pantanir í nýjar flugvélar að andvirði 62 milljarða króna og þá sé von á því að búið verða að ganga frá samningum í fleiri pantanir upp á álíka upphæð til viðbótar.

Piaggio Aerospace gekkst undir gjaldþrotameðferð í fyrra og segir Vincenzo Nicastro, sérstakur fulltrúi fyrirtækisins á vegum ríkisstjórnar Ítalíu, að öll tilboð verða skoðuð og því næst verður ákveðið hvaða tilboð fara inn í næsta ferli áður en rétti kaupandinn verður valinn.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga