flugfréttir

Isavia og ASÍ semja um upplýsingagjöf til erlends launafólks

- Forseti ASÍ og forstjóri Isavia undirrituðu samstarfssamning í gær

28. febrúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 07:29

Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, og Drífa Snædal, forseti ASÍ

ASÍ og Isavia hafa gert með sér samstarfssamning um miðlun upplýsinga til erlends launafólks um íslenskan vinnumarkað, kjarasamninga, réttindi og skyldur.

Drífa Snædal, forseti ASÍ, og Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, undirrituðu samstarfssamning þess efnis í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli í gær.

Markmiðið með samningnum og samstarfi ASÍ og Isavia er að stuðla að heilbrigðum vinnumarkaði á Íslandi, þar sem allir njóti kjara og annarra réttinda í samræmi við kjarasamninga og lög og þar sem launafólki er ekki mismunað á grundvelli þjóðernis. Þetta er liður í baráttunni fyrir heilbrigðum vinnumarkaði, að kjarasamningar séu virtir og fólk af erlendum uppruna sem kemur til landsins að vinna fái upplýsingar um réttindi sín.  

Til að ná þessu markmiði verða skjáir í flugstöðinni notaðir til að miðla upplýsingum til farþega. Þá verður prentað kynningarefni gert aðgengilegt á nokkrum stöðum – þar á meðal í töskumóttökusal flugstöðvarinnar.   

Verkefnið byggir m.a. á samfélagslegri ábyrgð aðila eins og hún birtist í heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um góða atvinnu og hagvöxt og um frið og réttlæti.  

Frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli

„Íslenskur vinnumarkaður er skipulagður og launafólk á skjól í stéttarfélögum,“ segir Drífa Snædal, forseti ASÍ. „Þessu er ekki til að heilsa alls staðar í veröldinni og því mikilvægt að koma þeim upplýsingum vel og skilmerkilega á framfæri við launafólk hvert það getur leitað að stuðningi og skjóli. Flugstöð Leifs Eiríkssonar er sá staður þar sem fólk kemst fyrst í kynni við landið og því er afar ánægjulegt að hægt sé að koma upplýsingum á framfæri þar, í bæklingum og á skjáhvílum.“   

„Isavia er stór vinnuveitandi, Keflavíkurflugvöllur er stór vinnustaður og því til viðbótar þá er okkur umhugað um heilbrigði vinnumarkaðs á Íslandi.,“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia. „Þess vegna tökum við þátt í því verkefni að aðvelda erlendu launafólki að nálgast réttar upplýsingar um leið og það fer í gegnum Flugstöð Leifs Eiríkssonar, stærstu gáttina til landsins. Þannig fær það tækifæri til að að sækja upplýsingar um réttindi sín og skyldur öllum til hagsbóta.“ Nánari upplýsingar um réttindi launafólks má finna á vef ASÍ 







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga