flugfréttir
Airbus A220 og Embraer E2 til skoðunar hjá SAS
SAS segir að vandamál með hreyfla á Airbus A220 og Embraer E2 sé eitthvað sem félagið verði að vega og meta
Scandinavian Airlines (SAS) undirbýr sig nú til þess að taka ákvörðun um nýja flugvélategund sem notuð verður til að endurnýja minni farþegavélar félagsins sem notaðar eru á styttri flugleiðum.
Valið stendur á milli Airbus A220 (CSeries) og E2-þotunnar sem er ný kynslóð af Embraer-þotunum. Félagið hefur
hinsvegar áhyggjur af þeim hreyflum sem báðar þessar vélar koma með.
Bæði A220 og Embraer E2 koma með hreyflum frá Pratt & Whitney en nokkrum sinnum hafa komið upp vandamál með PW1500G
hreyflana á A220 þotunum bæði hjá SWISS International Air Lines og einnig hjá airBaltic.
Rickard Gustafson, framkvæmdarstjóri SAS, segir að félagið vilji panta eina þotutegund sem leysir af hólmi bæði Boeing 737-700 þoturnar
og Airbus A319 og gæti félagið með því einfaldað flotann.
Gustafson segir að A220 og Embraer E2 komi báðar sterklega til greina en gallinn sé samt sá að töluverð vandamál hafa verið með nýja þotuhreyfla frá Pratt & Whitney.
SAS ætlar sér að vera búið að losa sig við Boeing 737-700 og Airbus A319 þoturnar fyrir árið 2023.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.