flugfréttir
Hafa lagt 120 þotum vegna kórónaveirunnar
- 78% flugflota Cathay Pacific á jörðu niðri
Flugvélar Cathay Pacific á flugvellinum í Hong Kong
Sagt er að um 70 prósent alls flugflota kínverska flugfélagsins Cathay Pacific sé kyrrsettur vegna útbreiðslu kórónaveirunnar þar sem flugsamgöngur til og frá Kína hafa dregist verulega saman undanfarna daga og vikur.
Nýjustu fréttir frá Hong Kong herma að félagið hefur í dag lagt yfir 120 þotum af öllum flotanum sem telur 152
þotur og eru þær kyrrsettar á Chek Lap Kok flugvellinum í Hong Kong en talið er að félagið eigi eftir að leggja enn
fleiri þotum á næstunni.
Til samanburðar má nefna að þegar útbreiðsla SARS-vírussins, sem gekk yfir árið 2003, þurfti Cathay Pacific að leggja
25% af flugflotanum og fella niður um 45 prósent af öllu flugi en í dag hefur félagið fellt niður 78 prósent af öllu
áætlunarflugi vegna kórónaveirunnar.
Útbreiðsla veirunnar hefur verri áhrif á rekstur Cathay Pacific samanborið við önnur flugfélög þar sem félagið
flýgur um helming af öllum þeim áætlunarflugferðum sem eiga sér stað milli Hong Kong og meginlands Kína
en félagið hefur dregið saman þær flugferðir um 90 prósent.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.