flugfréttir

Talið að kveikt hafi verið í einkaþotu í Toronto

- Dassault Falcon 50 einkaþota brann til kaldra kola á flugvelli

3. mars 2020

|

Frétt skrifuð kl. 07:04

Eins og sjá má þá er Falcon 50 einkaþotan gjörónýt eftir íkveikjuna

Lögreglan í Kanada rannsakar nú dularfullan eldsvoða þar sem talið er að kveikt hafi verið í einkaþotu af gerðinni Dassault Falcon 50 sem brann til kaldra kola á Buttonville-flugvellinum í Toronto.

Íkveikjan átti sér stað í skjóli nætur sl. fimmtudagskvöld og kom í ljós að búið var að klippa gat á grindverk flugvallarins þar sem klippur fundust á vettvangi auk bensínbrúsa.

Slökkvilið Torontoborgar var fljótt á staðinn þegar í ljós kom að einkaþotan var í ljósum logum en ekki var hægt að bjarga miklu þar sem eldurinn var þegar búin að eyðileggja nánast allan skrokk vélarinnar.

Einkaþotan hafði staðið á Buttonville-flugvellinum í 4 mánuði

Falcon 50 einkaþotan er um 40 ára gömul, smíðuð árið 1980, en hún hefur staðið á Buttonville-flugvellinum í 4 mánuði.

Flugvélin er skráð á fyrirtækið Adams Avaition Services í Delaware í Bandaríkjunum. Samkvæmt FlightAware vefsíðunni þá er síðasta flug einkaþotunnar skráð þann 24. október 2019 frá White Plains í New York til Buttonville-flugvallarins í Toronto.

Þotunni hafði verið flogið 13.350 flugtíma og voru skráðar á hana 10.050 flugtök og lendingar frá upphafi.

Fleiri myndir:











  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga