flugfréttir

Flugvöllur í Nashville rústir einar eftir skýstróka

- Tugi flugvéla skemmdar og fjögur flugskýli ónýt

3. mars 2020

|

Frétt skrifuð kl. 18:17

Fram kemur að John C. Tune flugvöllurinn sé mjög illa farinn eftir skýstrókana sem gengur yfir Tennessee í nótt

Skýstrókar lögðu heilan flugvöll í rúst í Nashville í Bandaríkjunum í nótt. Að minnsta kosti fjögur flugskýli eru í tætlum og eru tugi flugvéla ýmist stórskemmdar eða gjörónýtar eftir að hvirfilbylurinn gekk yfir Tennesse.

Flugvöllurinn sem um ræðir er John C. Tune flugvöllur (JWN) en hann er einn stærsti flugvöllur fyrir almannaflug í Tennessee en völlurinn er stórskemmdur eftr óveðrið og er eignartjón mikið.

Litlar flugvélar liggja eins og hráviði á víð og dreif á flugvallarsvæðinu innan um brak frá flugskýlunum sem tættust í sundur. Skýstrókarnir kostuðu 22 manns lífið í Tennessee og er eyðilegging töluverð í Nashville og hefur verið lýst yfir neyðarástandi í fylkinu.

King Air og Premier einkaþota í rústum eins flugskýlisins

Meðal flugvéla sem eru stórskemmdar eru vélar af gerðinni Beechcraft King Air B200, Beech Bonanza, Cessna Citation, Beechcraft Premier einkaþota auk þess sem fjöldi minni flugvéla af Piper og Cessna-gerð eru mikið skemmdar.

Flugvellinum hefur verið lokað um óákveðinn tíma og er nú unnið að hreinsunarstarfi en ekki er enn vita hversu mikið tjón varð á flugvellinum og á einnig eftir að meta tjón á flugvélum.

Fleiri myndir:

















  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga