flugfréttir

Ekki miklar líkur á að A320 komi til greina fyrir Ryanair

- Væru til í að skoða A320 ef Airbus myndi bjóða þeim „rétt“ verð

4. mars 2020

|

Frétt skrifuð kl. 15:49

Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, í viðtali í gær á A4E ráðstefnunni í Brussel

Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, hefur gefið í skyn að lágfargjaldafélagið írska sé tilbúið að skoða þann möguleika að leggja inn pöntun í A320 þotur ef Airbus er tilbúið að gefa félaginu hagstætt tilboð í þoturnar þrátt fyrir að félagið sér ekki beint fram á að það muni gerast.

„Airbus-þoturnar eru dýrari en þoturnar frá Boeing þannig að eins og er þá er Lauda-flugfélagið að græða minni pening heldur en Ryanair“, sagði O´Leary á A4E ráðstefnunni sem fram fer í Brussel.

O´Leary líkti Airbus A320 og Boeing 737 saman við Toyota Corolla og Volkswagen Golf og tók fram að báðir bílarnir virka svipað en spurningin sé hvorn bílinn sé hægt að fá á ódýrari kjörum.

„Ég myndi hefja viðræður við Airbus ef verðmiðinn væri okkur í hag og ef það myndi losna afhendingarpláss hjá þeim“, sagði ramkvæmdarstjórinn sem tók fram að hann setti sig í samband við Airbus í síðustu viku.

Aðspurður að því hvort að hann sæi fram á að Ryanair verði komið með Airbus A320 þotur í flotann á næstu 10 árum svarar O´Leary að hann efaðist um það.

Ryanair hefur neyðst til þess að endurskoða umsvif sín og draga úr þeirri útrás sem félagið stefndi að vegna kyrrsetningu á Boeing 737 MAX þotunum en í næstu viku verður komið eitt ár frá því að þoturnar voru kyrrsettar.

Ryanair sér ekki fram á að geta byrjað að nota Boeing 737 MAX þoturnar fyrr en í fyrsta lagi næsta vetur en þrátt fyrir það hefur félagið lýst því yfir að það sé tilbúið að leggja inn pöntun í enn fleiri 737 MAX þotur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga