flugfréttir

Flybe gæti heyrt sögunni til á næstu vikum

- Breska ríkisstjórnin hætt við að veita félaginu neyðarlán og lækka skatta

4. mars 2020

|

Frétt skrifuð kl. 18:01

Bombardier Dash 8 Q400 flugvél Flybe

Breska lágfargjaldafélagið Flybe er komið aftur á barm gjaldþrots eftir að ríkisstjórn Bretlands breytti ákvörðun sinni um að bjarga rekstri flugfélagsins sem til stóð að gera með neyðarláni.

Það var um miðjan janúar sem að breska ríkisstjórnin tilkynnti að til stæði að bjarga Flybe með því að veita félaginu lán upp á 100 milljónir Sterlingspunda sem samsvarar 16.4 milljörðum króna en forsvarsmenn annarra flugfélaga gagnrýndu þær aðgerðar harðlega og þar á meðal Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, og Willie Walsh, framkvæmdarstjóri IAG, móðurfélags British Airways.

Lánið átti að vera hluti af neyðaraðgerðum til að bjarga félaginu og stóð einnig til að lækka farþegaskatta fyrir félagið og fresta skattagreiðslum.

Á sama tíma þá gagnrýnir Mark Anderson, framkvæmdarstjóri Connect Airways, þessa nýju ákvörðun stjórnvalda og tekur fram að ef Flybe verður gjaldþrota að þá verði gríðarleg röskun á flugsamgöngum í innanlandsflugi í Bretlandi sem eigi eftir að bitna á hagkerfinu og aðeins örfáum flugleiðum milli einstakra flugvalla verður bjargað af öðrum flugfélögum.

„Bara ef að stjórnvöld myndu lækka farþegaskatta um helming þá myndi það bjarga rekstri Flybe“, segir ónefndur aðili í viðtali við dagblaðið Financial Times.

Áður hafði komið fram að fjárhagsstaðan hjá Flybe væri það slæm að félagið nær aðeins að þrauka út marsmánuð miðað við það rekstarfé sem eftir er en fram kemur að forsvarsmenn félagsins eigi nú í neyðarviðræðum til að reyna að bjarga félaginu frá gjaldþroti.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga