flugfréttir
Þrír yfirmenn Air Namibia reknir í kjölfar rannsóknar
Flugvélar namibíska flugfélagsins Air Namibia á flugvellinum í borginni Windhoek
Þrír stjórnendur hjá Air Namibia hafa verið reknir frá félaginu í tengslum við rannsókn sem fram fer á rekstri félagsins.
Fram kemur að þeir sem voru látnir fara frá félaginu eru meðal annars rekstarstjóri yfir þjónustudeild, yfirmaður
yfir fraktdeild félagsins og forstjóri rekstardeildar fraktflugsdeildarinnar.
Yfirmaður yfir rannsóknarteymi segir að séð verði til þess að yfirmennirnir þrír geti ekki haft neitt samband
við annað starfsfólk félagsins á meðan á rannsókn félagsins stendur yfir.
Ekki kemur fram hvers eðlis rannóknin er og hver er tilgangur hennar en fram kemur að yfirmönnunum þremur
hafi verið gert grein fyrir hversvegna þeir voru látnir fara.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.