flugfréttir
Lufthansa mun leggja öllum A380 risaþotunum
- Framboð á flugsætum verður dregið saman um helming
Lufthansa mun draga saman umsvif sín um að minnsta kosti 50% vegna gríðarlegs samdrátts í eftirspurn eftir flugsætum
Lufthansa hefur ákveðið að taka allar Airbus A380 risaþoturnar úr notkun að minnsta kosti fram í maí í vor og skera niður flugáætlun allra dótturfélaga innan Lufthansa Group um 50 prósent á næstu dögum.
Sala á flugmiðum
hefur dregist saman um næstum helming undanfarna daga meðal dótturfélaga Lufthansa Group vegna útbreiðslu kórónaveirunnar, Covid-19.
Samdrátturinn mun ná til Lufthansa, SWISS International
Air Lines, Austrian Airlines, Eurowings, Brussels Airlines, Air Dolomiti, CityLine, Edelweiss Air og SunExpress.
Lufthansa hefur fjórtán Airbus A380 risaþotur í flotanum
en sætanýtingin um borð í risaþotum félagsins hefur verið aðeins 35% sem endurspeglar þau áhrif
sem veiran er að hafa á flugfélögin.
Lufthansa hefur nú þegar brugðist til þess ráðs að bíða með allar nýjar starfsmannaráðningar og hefur
félagið beðið starfsfólk um að taka að sér launalaust leyfi í óákveðin tíma líkt og mörg önnur flugfélög.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.