flugfréttir
Starfsemi Alitalia í norðurhluta Ítalíu lamast vegna veirunnar
Airbus A320 þota Alitalia á Fiumicino-flugvellinum í Róm
Starfsemi ítalska flugfélagsins Alitalia hefur lamast eftir að ítölsk stjórnvöld ákváðu í gær að loka norðurhluta Ítalíu vegna útbreiðslu kórónaveirunnar með þeim afleiðingum að 16 milljónir íbúa eru nú í sóttkví.
Öllum brottförum og komum hefur verið aflýst um Malpensa-flugvöllinn í Mílanó og flug um Linate-flugvöllinn er
mjög takmarkað og aðeins um örfá innanlandsflug að ræða og það sama gildir um áætlunarflug um Feneyjar.
Alitalia flýgur meðal annars frá Malpensa-flugvellinum til New York og Tókýó en síðasta áætlunarflug félagsins um Malpensa-flugvöllinn lendir í dag sem er flug frá New York.
Á sama tíma og Alitalia stendur frammi fyrir erfiðleikum vegna útgreiðslu veirunnar á Ítalíu þá hefur félagið
auglýst eftir tilboðum frá áhugasömum fjárfestum í félagið sem er enn ein tilraun ítölsku ríkisstjórnarinnar til þess
að einkavæða rekstur félagsins.
Rekstur Alitalia hefur verið í járnum í mörg ár og hefur félagið ekki skilað inn hagnaði frá árinu 2002.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.