flugfréttir
Sækja um flugrekstarleyfi í Furstadæmunum
- Wizz Air Abu Dhabi mun hefja starfsemi sína í haust
Airbus-þotur Wizz Air á flugvellinum í Dortmund
Ungverska lágfargjaldafélagið Wizz Air hefur formlega sótt um flugrekstarleyfi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum fyrir nýju dótturflugfélagi sem verður með höfuðstöðvar þar í landi.
Flugfélagið kemur til með að heita Wizz Air Abu Dhabi og mun það hefja starfsemi sína í haust og en ekki er búið
að tilgreina leiðarkerfi félagsins eða gefa upp til hvaða áfangastaða félagið mun fljúga en búið er að gefa upp
að félagið mun fljúga frá Abu Dhabi til borga í Evrópu, Afríku og í Miðausturlöndum.
Til stendur að hefja ráðningar og leita að flugmönnum og áhöfnum á næstu mánuðum. Wizz Air hefur eingöngu
Airbus-þotur í flota sínum af gerðinni A320 og A321 en ekki er búið að gefa upp hvaða flugvélar Wizz Air Abu Dhabi
mun koma til með að nota.
Meðal fyrirtækja sem koma að fjármögnun nýja flugfélagsins er Abu Dhabi Development Holding Company sem hefur mikla reynslu af markaðnum í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.