flugfréttir
Hækka leigugjöld fyrir tvo svifflugklúbba um 550 prósent
- Tveir elstu svifflugklúbbar Ástralíu saka flugvallareigandann um ofurgræðgi
Sögu Southern Cross Gliding Club svifflugklúbbsins má rekja aftur til ársins 1941
Tveir elstu og sögufrægustu svifflugsklúbbarnir í Sydney í Ástralíu segja að mögulega stefni í að klúbbarnir neyðist til þess að hætta eftir 80 ára starfsemi þar sem að flugvallarfyrirtækið og eigandi flugvallanna, Sydney Metro Airports, hefur tilkynnt að leiga og aðstöðugjöld fyrir sviffluguklúbbana muni hækka um allt að 550 prósent strax í þessum mánuði.
„Fjölmargir unglingar hafa tekið sín fyrstu skref í fluginu hjá okkur í sviffluginu og eru mörg þeirra í dag í atvinnufluginu
eða farið í flugherinn“, segir Justin Couch, formaður Southern Cross Gliding Club svifflugklúbbsins.
Sögu Sydney Cross Gliding Club svifflugklúbbsins má rekja aftur til ársins 1941 og sögu Sydney Gliding klúbbsins til ársins 1970 en báðir hafa þeir bækistöðvar á Camden-flugvellinu sem staðsettur er suðvestur af Sydney.
Sydney Metro Airports hefur tilkynnt að gjöldin muni hækka um 225% annars vegar og 558% hinsvegar fyrir svifflugklúbbana
og hafa svifflugssamtök Ástralíu kallað eftir aðstoð frá AOPA í Ástralíu vegna málsins.
Svifflugs hefur verið mikilvægur hluti af fluginu í Ástralíu og má rekja svifflugið þar í landi aftur til ársins 1940
„Það er svakalegt að sjá hversu mikil græðgi það er af hálfu eigendum flugvallana og hversu lítill áhugi
það er að hlúa að starfsemi sem snýr að fluginu til langstíma með svona skyndiákvörðun“, segir Couch sem
bætir því við að hækkunin var tilkynnt með aðeins eins dags fyrirvara.
Svifflugsamtök Ástralíu fá AOPA með sér í lið
Ef báðir svifflugsklúbbarnir leggjast af gæti það haft áhrif á þróun er kemur að flugkennslu í Ástralíu þar sem mjög margir
byrja sinn flugferil í svifflugi þar sem svifflugið er talin ein besta leiðin til þess
að kynnast fluginu. Svifflug hefur verið mjög stór hluti af flugmenningu Ástrala allt frá fjórða áratug síðustu aldar.
„Þessi hækkun, sem hefur verið boðið á leigugjöldum á flugvöllunum, er ósjálfbær fyrir klúbbana og endurspeglar hversu
lítil tenging er í raunveruleikanum á milli væntinga einkaaðilanna sem reka flugvellina og getu einkaflugsins til þess að þrífast
og sinna sínu mikilvæga hlutverki er kemur að fluginu“, segir Benjamin Morgan, formaður félags einkaflugmanna og flugvélaeigenda
í Ástralíu (AOPA Australia).
„Grasrótin hefur enga annarra kosta völ en að hafa aðgengi að flugvöllum til að þrífast. Það er engin önnur staðsetning
í Sydney sem kemur til greina. Ef svona hækkun á leigu verður að veruleika þá er ekkert annað í stöðunni en að loka og
hætta rekstri“, segir Morgan.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.