flugfréttir
Uppsagnir mögulegar hjá Icelandair vegna veirunnar
- Eftirspurn eftir flugsætum til og frá landinu dregst saman
Séð út um glugga á Boeing 757 þotu Icelandair í aðflugi að Munchen
Svo gæti farið að Icelandair verði að grípa til uppsagna til þess að hagræða rekstri félagsins vegna útbreiðslu kórónaveirunnar sem farin er að hafa áhrif á rekstur hjá flestum flugfélögum í heiminum.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, sagði í viðtali í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni að áætlanir gera ráð fyrir að
eftirspurn eftir flugsætum eigi eftir að minnka áfram á næstu vikum og jafnvel mánuðum og sé félagið að vinna að því að
koma fram með breyttar aðgerðir til að bregðast við því.
„Ég held að það sé óhjákvæmilegt að við verðum að taka ákvarðanir sem eru bæði erfiðar og geta verið sársaukafullar, við verðum að gera það.“, segir Bogi Nils meðal annars
en Icelandair hefur nú þegar fellt niður 80 flugferðir vegna veirunnar og er von á að enn fleiri ferðir verða felldar niður á næstunni.
Þær 80 flugferðir sem félagið hefur fellt niður voru á áætlun í mars og í apríl sem nemur 2% af þeim 3.500 flugferðum
sem voru áætlaðar fram í byrjun maí.
Bogi bendir á að sennilega þurfi félagið að gera það sama og erlend flugfélög sem hafa þurft að bregðast við minni eftirspurn
eftir flugsætum með því að draga úr framboðinu en slíkt kallar á uppsagnir á meðan ástandið varir.
Þrátt fyrir það þá tekur Bogi fram að sterk lausafjárstaða Icelandair gerir félaginu
kleift að bregðast hratt við breyttri stöðu á mörkuðum félagsins en stjórn félagsins
fylgist náð með breytingum í flugiðnaðinum vegna áhrifa af COVID-19.
Í fréttum á Visi.is kemur fram að stjórnendur Icelandair reikna með því að eftirspurn verði frekar dræm næstu vikur og mánuði en telja að það fari að létta til síðar á árinu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.