flugfréttir

250 manns sagt upp tímabundið hjá Air Baltic

- Sjá gríðarlegan samdrátt í bókunum í apríl og maí

11. mars 2020

|

Frétt skrifuð kl. 11:09

Airbus A220 þota Air Baltic á flugvellinum í Salzburg í Austurríki

Air Baltic mun segja upp 250 starfsmönnum vegna samdráttar sem rekja má til útbreiðslu kórónaveirunnar en um 1.600 manns starfa hjá félaginu.

Air Baltic hefur verið í mjög örum vexti undanfarin ár og hefur félagið til að mynda endurnýjað flugflota sinn af miklum krafti með nýjum Airbus A220 þotum sem upphaflega voru pantaðar frá Bombardier.

Í yfirlýsingu frá félaginu kemur fram að um tímabundnar uppsagnir sé að ræða en flestir þeirra sem verður sagt upp eru flugmenn og aðrir áhafnarmeðlimir. Félagið mun einnig fara fram á að starfsmenn taki að sér launalaust leyfi.

Martin Gauss, framkvæmdarstjóri Air Baltic, segir að þessi ákvörðun sé mjög erfið en samt nauðsynleg. Hann tekur fram að byrjunin á árinu 2020 lofaði mjög góðu en félagið standi frammi fyrir mjög krefjandi aðstæðum í dag.

„Við verðum að gera þetta og verðum tilbúnir til þess að endurráða starfsmenn aftur um leið og ástandið batnar“, segir Gauss.

„Eins og staðan er í dag getum við ekki haldið áfram eins og við höfum gert. Það þarf að aflýsa flugferðum og kyrrsetja flugvélar þar sem við erum að sjá gríðarlegan samdrátt í bókunum“, segir Gauss.

Air Baltic hefur nú þegar aflýst 580 flugferðum í apríl og í maí og þá hefur félagið hætt öllu flugi til ítalskra borga á borð við Mílanó, Róm, Verona og einnig hefur flug verið fellt niður til Tel Aviv í Ísrael.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga