flugfréttir

Breyta reglugerðum til að sporna við „draugaflugi“

- Afnema stífar reglur um flugvallarpláss á evrópskum flugvöllum

12. mars 2020

|

Frétt skrifuð kl. 09:19

Flugfélög þurfa að fljúga 80% af flugáætlun sinni til að viðhalda rétti til þess að nota afgreiðslupláss á flugvöllum í Evrópu

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur ákveðið að aflétta reglugerðum sem snúa að notkun á afgreiðsluplássum á evrópskum flugvöllum í þeim tilgangi að koma í veg fyrir „draugaflug“.

Vegna útbreiðslu kórónaveirunnar hefur eftirspurn eftir flugsætum hríðfallið og dæmi eru um að flugfélög hafa verið að fljúga tómum flugvélum einungis til þess að viðhalda rétti til að hafa afnot áfram að afgreiðsluplássum á flugvöllum en flugfélög geta misst rétt sinn til að halda plássunum ef þau fljúga ekki lágmarksfjölda flugferða samkvæmt flugáætlun.

Evrópusambandið ætlar að aflétta tímabundið þeim skuldbindingum sem snúa að afnot að afgreiðsluplássum á meðan að breytt ástand í flugheiminum varir.

„Þetta mun draga úr þeim þrýstingi sem flugfélögin eru undir er kemur að plássunum og sérstaklega meðal smærri flugfélaga og á sama tíma draga úr þeirri kolefnalosun sem fylgir því að fljúga „draugaflug“ þar sem flugfélög fljúga næstum því tómum flugvélum í þeim tilgangi að missa ekki plássin“, segir Ursula von der Leyen, formaður framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins.

Núverandi reglugerð gerir ráð fyrir að flugfélög þurfi að fljúga 80% af flugáætlun sinni til þess að forðast að eiga á hættu að missa pláss á flugvöllum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga