flugfréttir
Nota Brandenburg-flugvöll til að geyma flugvélar
- Tuttugu og fimm breiðþotum lagt og 125 minni farþegaþotum
Flugvélar Lufthansa á Brandenburg-flugvellinum í Berlín í dag
Lufthansa er byrjað að leggja fjölda flugvéla úr flota sínum og flota dótturfélaganna á Brandenburg-flugvellinum í Berlín þar sem félagið hefur hafið niðurskurð og dregið saman umsvif sín tímabndið vegna útbreiðslu kórónaveirunnar.
Það getur verið vandasamt fyrir flugfélag að finna pláss fyrir yfir 150 flugvélar og kemur sér þá vel að ekki er enn búið
að taka í notkun Brandenburg-flugvöllinn þar sem hann býður upp á geymslupláss fyrir stóran hluta af þeim fjölda flugvéla.
Lufthansa hefur tekið úr notkun tímabundið 25 breiðþotur og þar af fjórtán Airbus A380 risaþotur og 125
minni flugvélar sem flestar eru einnig af Airbus-gerð.
Einhverjar flugvélar verða geymdar á flugvöllunum í Munchen og í Frankfurt en þar sem ekki
er pláss fyrir þann fjölda flugvéla sem verður lagt þá er nóg pláss á Brandenburg-flugvellinum.
Flugvélar Lufthansa og SWISS International Air Lines hafa einnig verið settar í geymslu á flugvellinum í Frankfurt
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Brandenburg-flugvöllurinn er nýttur fyrir geymslupláss en þess má geta að bílaframleiðandinn Volkswagen fékk að geyma tugi þúsundir bíla á flugvellinum
árið 2015 þegar fjöldi Golf-bifreiða var innkallaður vegna galla í útblásturskerfi.
Lufthansa tilkynnti í gær að félagið hafi fellt niður um 23.000 flugferðir frá og með 29. mars fram
til 24. apríl vegna áhrifa af útbreiðslu kórónaveirunnar og er gert ráð fyrir að fleiri ferðum
verði aflýst á næstu vikum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.