flugfréttir
EasyJet leggur 100 þotum
Farþegaþotur easyJet á Tegel-flugvellinum í Berlín
EasyJet hefur lagt um 100 farþegaþotum vegna útbreiðslu kórónaveirunnar og segir félagið að svo gæti farið að nauðsynlegt verði að leggja flestum þotunum í flotanum þegar á líður.
„Framtíð flugsins í Evrópu er í mikilli óvissu og er það alveg ljóst að þörf er á stuðningi frá ríkisstjórnum Evrópulanda
til að tryggja það að flugfélögin geti náð að þrauka í gegnum þessa tíma“, segir Johan Lundgren, framkvæmdarstjóri
easyJet.
Félagið mun halda áfram að skera niður leiðarkerfið og fækka flugferðum en fram kemur að easyJet muni áfram
aðstoða farþega við að komast til síns heima eftir mesta megni. Fram kemur að kyrrsetning á flugflota félagsins er ein mikilvægasta leiðin til þess að draga úr rekstrarkostnaði.
EasyJet segir að lausafjárstaða félagsins sé mjög sterk til þess að takast á við þessa breyttu tíma en varað er
við því að það sé ekki sjálfgefið að öll evrópsk flugfélög eigi eftir að lifa af þennan heimsfaraldur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.