flugfréttir

Alitalia verður ríkisvætt

- Ítalska ríkið mun taka yfir rekstur Alitalia vegna COVID-19

17. mars 2020

|

Frétt skrifuð kl. 06:36

Farþegaþotur Alitalia á Leonardo da Vinci flugvellinum í Róm

Ítalska ríkisstjórnin hefur ákveðið að stefna að því að taka yfir allan rekstur Alitalia og ríkisvæða rekstur félagsins á ný til þess að forða flugfélaginu frá gjaldþroti vegna heimsfaraldursins af völdum COVID-19.

Vandamál í rekstri Alitalia er ekkert nýtt af nálinni en félagið hefur verið á barmi gjaldþrots í mörg ár og hefur nokkrum sinnum verið óskað eftir tilboðum í félagið en engin áhugasamur fjárfestir sýndi félaginu áhuga nú á dögunum þegar gerð var tilraun til þess að finna nýjan kaupanda.

Búið var að gefa áhugasömum kaupendum frest fram til 31. maí til þess að koma með tilboð í félagið en vegna útbreiðslu kórónaveirunnar á Ítalíu hefur félagið neyðst til þess að skera verulega niður í flugáætlun sinni líkt og flest önnur flugfélög.

Alitalia fékk neyðarlán upp á 54 milljarða króna um sl. áramót en sagt er að sú upphæð sé núna strax að verða búin og myndi félagið því ekki hafa neitt lausafé til þessa að sinna daglegum rekstri lengur en í nokkkrar vikur.

Mjög ólíklegt er að Evrópusambandið muni grípa inn í til að koma Alitalia til bjargar og segir í ítalska dagblaðinu La Repubblica að verið sé að undirbúa neyðarfjármagn upp á 76 milljarða króna til þess að styrkja innviði flugsins á Ítalíu auk þess sem gripið verður til aðgerða að andvirði 459 milljarða króna til þess að forða Alitalia frá hrunin.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga