flugfréttir
Danska og sænska ríkið koma SAS til bjargar
- Tryggja félaginu neyðarlán upp á 42 milljarða króna ef allt fer á versta veg
Stórum hluta af breiðþotum SAS, sem eru af gerðinni Airbus A330 og A340, hefur verið lagt á flugvellinum í Kaupmannahöfn
Ríkisstjórnir Danmerkur og Svíþjóðar hafa tryggt rekstur SAS á meðan heimsfaraldurinn vegna COVID-19 gengur yfir með því að veita félaginu vilyrði fyrir láni upp á 3 milljarða sænskra króna sem samsvarar 42 milljörðum króna íslenskra.
Með þessu verður tryggt að rekstur SAS muni ekki verða fyrir skaða á meðan faraldurinn gengur yfir og er því ekki
hætta á að félagið verði gjaldþrota á meðan.
Sænska og danska ríkið hafa tryggt 1.5 milljarð sænskra króna hvort um sig fyrir rekstur SAS og er talið að sú upphæð
eigi að duga til að framfleyta félaginu í gegnum þá tíma sem framundan eru.
„SAS er mikilvægt fyrirtæki sem tryggir aðgang fólks að Skandinavíu
og er flugfélagið stór hluti af hagkerfi Svíðþjóðar og Danmerkur. Þar sem þessi tvö lönd eiga stærstan hluta í félaginu hafa ríkisstjórnir landanna tveggja
ákveðið að veita félaginu tryggingu fyrir áframhaldandi rekstri“, segir
Nicolai Wammen, fjármálaráðherra Danmerkur.
Þá segir ríkisstjórn Danmerkur að ríkið muni gera allt sem í þeirra
valdi stendur til að koma SAS í gegnum þessa erfiðu tíma.
Airbus A320neo þota SAS
Jacob Pedersen, fjármálasérfræðingur hjá Sydbank bankanum í Danmörku, segir
að ekki sé um raunverulegt fé að ræða heldur aðeins vilyrði fyrir tryggingu
ef allt fer á versta veg.
Þá tekur Pedersen fram að kostnaðurinn við að bjarga SAS sé mun
hærri þar sem 3 milljarðar sænskra króna dugi skammt en hann bendir
á að SAS sé að tapa um 100 milljónum króna á dag og þar af leiðandi
myndu 3 milljarðar aðeins duga í einn mánuð.
Pedersen bendir á að fleiri flugfélög eigi eftir að biðja danska ríkið
um aðstoð. Flugfélög sem eiga ekki eftir að lifa af heimsfaraldurinn.
„Það er ekki bara SAS sem er í vanda og vona ég að fjármálaráðherrann
eigi eftir að koma þeim einnig til bjargar“, segir Pedersen.
Meðal annarra flugfélaga í Danmörku sem gætu þurft á aðstoð að halda
eru DAT (Danish Air Transport), JetTime og Alsie Express.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.